Bakgrunnur
Ég er fæddur árið 1957 á Íslandi, en hef búið í Danmörku í yfir 25 ár og bý nú á Indlandi. Þegar ég var 24 ára hóf ég störf sem meðferðaraðili, stuttu eftir að ég hafði sjálfur gengist undir meðferð vegna vímuefnavanda. Sú reynsla varð upphafið að 15 ára starfi sem vímuefnaráðgjafi, meðal annars hjá SÁÁ og Teigi á Íslandi, sem og á meðferðarstofnunum í Svíþjóð og Noregi.
Frá árinu 2001 hef ég starfað sem löggiltur sálfræðingur og unnið með fjölbreytt vandamál – ekki aðeins fíkn, heldur einnig persónulegan þroska, kreppur, áföll og samskiptaörðugleika. Ég hef yfir 40 ára reynslu af meðferðarstarfi, þar af 22 ár sem sjálfstætt starfandi sálfræðingur í Danmörku.
Ég hef gegnt störfum sem meðferðarstjóri, deildarstjóri og sálfræðingur á stofnunum í Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Danmörku – bæði í einkageiranum og hjá hinu opinbera. Þar á meðal bar ég ábyrgð á að innleiða fyrstu meðferðina í dönsku fangelsi (Renbæk ríkisfangelsinu), þar sem áhersla var lögð á persónuleika og persónuleikaraskanir fanga.
Auk starfa minna sem sálfræðingur er ég einnig menntaður listamaður og held úti heimasiðu þar sem sjá má nokkur af verkum mínum.



