Hvað er Advaita Vedanta?
Advaita Vedanta – einnig kallað algildishyggja (enska: non-dualism) – er heimspekileg og andleg hefð frá Indlandi sem snýst um að viðurkenna veruleikann sem eina og óaðskiljanlega heild. Samkvæmt þessum skilningi er enginn raunverulegur aðskilnaður á milli „mín“ og „heimsins“ – allt er tjáning sömu meðvitundar.
Við upplifum oft lífið í gegnum hugsanir, samsömun við ytri atriði og þær skoðanir og hugmyndir sem komast upp í vana. Þetta getur skapað aðskilnaðartilfinningu hjá okkur. Advaita Vedanta bendir á að þessar skynjanir séu blekking og að okkar sanna eðli sé hrein meðvitund – frjáls, ótakmörkuð og tengd öllu.
Þessi skilningur getur fært huganum djúpan frið og frelsi. Með sjálfsskoðun, hugleiðslu og nærveru getum við uppgötvað að við erum ekki hugsanir okkar eða hlutverk – heldur meðvitundin á bak við þau.
Sri Ramana Maharshi og sjálfsskoðun
Sri Ramana Maharshi (1879–1950) er einn þekktasti nútímakennari Advaita Vedanta. Hann bjó á Arunachala-fjalli í Suður-Indlandi, þar sem í dag er Sri Ramanasramam – ashram sem tileinkað er lífi hans og kenningum. Meginaðferð hans var sjálfsrannsókn – einföld æfing þar sem athyglinni er beint inn á við með spurningunni: „Hver er ég?“ Ramana Maharshi benti á að okkar sanna eðli sé alltaf til staðar og að við getum nálgast það þegar við horfum út fyrir hugsanir og sjálfsmynd hugans.




